9.2.2010 | 03:45
Þvættingur um ábyrga byggðarstefnu.
Það sem þarna fer fram er hagsmunarvarsla fárra á okkar verðmætustu auðlind. Á einhvern ótrúlegann hátt höfum við Íslendingar sætt okkur við brask svokallaðra kvótagreifa á fisknum í sjónum. Útgerðinni tókst að skuldsetja sig um 600 milljarða þegar hrunamenn ákváðu að hinn óveiddi fiskur væri "dautt" fjármagn, eða "fé án hirðis".
Þegar kemur að byggðum landsins þá var þessi samþjöppun aflans það versta sem gat komið fyrir því þær byggðust í kringum fiskveiðar.
Þegar Vilhjálmur Egilson sat sambærilegt áróðursmót í Vestmanneyjum þá fór hann að blaðra um virkjunarleyfi í neðri þjórsá. Ég hélt fyrst að maðurinn væri þjakaður af sjóriðu enda fór hann víst með Herjólfi í aftakaveðri. En síðan rann þetta upp fyrir mér að útgerðin yrði að beina athyglinni frá gjafakvótanum enda hinir fáu kvótakóngar allsáttir. Þar með tengist þetta.
Þegar maður skoðar síðan íbúaþróun í fjarðarbyggð þar sem mikil vinsla var með fisk þá gefur það mynd af íbúaþróun. Um 1990 bjuggu þar tæplega 5000 en þá fór hið nýja fiskveiðikerfi að taka sinn toll og var svo komið að rétt rúm 4000 bjuggu á svæðinu um 2003.
Síðan kom einhver ótrúlegasta vitleysa í sögu þessa svæðis en það var álverið. Bullið og ýkjurnar voru svo magnaðar að Reyðfirðingar sáu sér ekki annan kost en að gera skipulag fyrir íbúabyggð í botni fjarðarins fyrir 15-20.000 manns. Eftir að um 500 milljarðar (að núvirði) og 3000 ferkíómetrum af ósnertu hálendi spillt kom niðurstaða.
Íbúafjöldi í fjarðabyggð frá því að þarna var blómleg útgerð, fyrir alla, yfir í að falla fyrir álinu er enn undir því sem hún var árið 1990. Samkvæmt tölum Fjarðarbyggðar þá vantar uppá álíka fjölda og býr á stöðvarfirði eða um 200 manns.
Það er augljóst að fjölbreytni í vinslu sem og að hleypa smærri aðilum að hjálpi byggðarlögum, enda sýna tölurnar það frá vestfjörðum þar sem atvinnuleysið er lægst. En strandveiðar hafa reynst vel (ekki þarf að koma á óvart að LÍÚ er þessu öllu ósammála
).
En betur má ef duga skal.
|
Fjölmenni á fundi um fyrningarleið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


ragnar73
pjetur
fjallkona1
bjarnihardar
disdis
larahanna
pallblondal
jenfo





Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.