Ekki vildi ég vera í advice hópnum núna.

Þeir eru nokkrir sem lofuðu því að engin málaferli yrðu og töldu allar líkur á að sigur ynnist ef svo færi að málið færi fyrir dómstólum.  Þar á meðal eru æðstu embættismenn landsins, hæstarréttadómarar að ónefndum þingmönnum.  Nú allt í einu finnum við það að mikið er undir. 

Ég spurði einu sinni í annari færslu þegar menn kusu um Icesave 3 hvort menn skyldu áhættuna.  Ég tók út þær tölur sem þá var veifað í auglýsingum og spurði:

"þið skuldið 320 þúsund í banka. Bankinn kallar þig til og vill að skuldin sé greidd en kemur með einn möguleika. Hann tekur upp tening og býður þér það að ef allar tölur nema einn og tveir koma upp þá fellur skuldin niður, en ef einn og tveir koma upp þá hækkar skuldin í 4.56 milljónir. Mynduð þið taka áhættuna? Væntanlega ekki."

Nú kemur í ljós hvar réttur okkar er.  Lobbý hópar eru strax byrjaðir að spinna sig frá ábyrgð og vilja meina að menn muni ekki gæta hagsmuna Íslands og málið myndi tapast.  Það er alvarleg ásökun og ekki að furða að menn spyrji sig hvort þessir hópar ættu ekki að kæra utanríkisráðherra fyrir landráð?

En í ljósi þessarar stöðu sem við finnum okkur í þá vona ég að vinnum þetta mál þó að mínu viti er áhættan af þjóðrembunni svo mikil að betra hefði verið að semja.

 


mbl.is Össur gæti ekki hagsmuna Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Elís Már Kjartansson

Voru skattgreiðendur á Íslandi ábyrgir á icesave reikningum í Brétlandi og Hollandi þar sem bankinn greiddi meðal annars innstæðu tryggingar í breska innistæðutrygginga sjóðinn held ekki ÞETTA MUN ALDREI VERÐA GREITT SVO EITT ER VÍST. Síðan til að halda þessu til haga þá er búið að dæma í hæstarétti á Íslandi þar sem varnarþing Íslands er gegn stærstu kröfuhöfum sem reyndu að hnekkja neyðarlögunum en þau náttúrulega héldu auðvitað og þau munu halda í þessu máli líka þar sem innistæðueigendur fá allt sitt greitt úr þrotabúinu sem er reyndar bjanalegt því innistæðutrygginarsjóðurinn í brétlandi ætti að greiða þeim út þar sem tryggingarnar voru þar!!. Íslenskir skattgreiðendur bera enga ábyrgð á einkabanka annars væri það nú varla einkabanki en kommúnistar og kratar skilja það bara alls ekki því þeim þykkir jú svo gott að sukka og svína á kostnað almennings.

Elís Már Kjartansson, 20.12.2011 kl. 18:58

2 Smámynd: Andrés Kristjánsson

"Íslenskir skattgreiðendur bera enga ábyrgð á einkabanka annars væri það nú varla einkabanki en kommúnistar og kratar skilja það bara alls ekki því þeim þykkir jú svo gott að sukka og svína á kostnað almennings." 

Áhugavert í ljósi þess að versti samningurinn, sem gerði ekki ráð fyrir því að greitt yrði úr eignarsafni Landsbankans heldur af ríkissjóði og það á vöxtunum 6,7%, kom frá Sjálfstæðisflokknum.  En hér er stefnan ef þú trúir því ekki að okkur hefur verið stefnt.

Andrés Kristjánsson, 20.12.2011 kl. 19:27

3 Smámynd: Óskar

Alveg sama hvað vesalingurinn Elís reynir að berja sínum heimska haus oft í ljóstastaur og þvaðra um að íslenska þjóðin beri ekki ábyrgð - þá er ESA því miður ekki sammála honum og hefur reyndar talsvert til síns máls. 

Má kanski minna vesalinginn á að Íslenskur banki rændi og ruplaði erlendis- þessi banki var undir Íslensku eftirliti sem brást,  Islenski seðlabankinn undir stjórn vanhæfasta seðlabankastjóra allra tíma afnam bindiskildu á bankann svona til að aðstoða hann við ránið í Bretlandi og Hollandi.  Íslenska þjóðin naut svo þýfisins og lét alla þá heyra það sem voguðu sér að efast um hæfni og heiðarleika íslensku bankamafíunnar.  Svo hrundi spilaborgin og þá er ábyrgðin á "tæru snilldinni" allt i einu ekki íslensk að mati þunnilda eins og Elís.

Óskar, 20.12.2011 kl. 19:30

4 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ég er skíthræddur um að þetta erfiða mál, sem gat aldrei orðið öðruvísi en vont fyrir okkur Íslendinga, eigi eftir að verða jafnvel enn verra.  Ég  eins og 42% af þjóðinni vildi lágmarka skaðan og semja en þeir eru víst fleiri sem eru ískaldir og taka sjénsa á málaferlum sem gætu farið vel eða, eins og sagan sýnir með kærur ESA og EFTA dómstólsins, mjög illa.  Ég vona að við höfum rangt fyrir okkur Óskar.

Andrés Kristjánsson, 20.12.2011 kl. 19:52

5 identicon

Alltaf eruð þið sömu aumingjarnir og veimiltíturnar þessir Icesave og ESB sinnar. Aldrei haft döngun í ykkur að standa með eigin þjóð. Hver segir að Ísland tapi þessu máli? Eini sénsinn að það tapist er að láta Icesave stjórnina og þá þennan hlægilega vindbelg Össur sjá um málsvörnina. Enda eiga þeir hagsmuni í að málið tapist. Nú er svo komið að af nokkrum slæmum kostum mæna menn nú á Árna Pál sem til forræðis yfir málinu. Vegna hvers? Það er vonast til að hann sé ekki eins svívirðilegur ónytjungur og ekki alveg eins mikill ESB rassasleikir og hinir. Sérstaklega jólasveinninn Össur sem hefur sérhæft sig í svona sleikjum. Enda búið að þinglýsa á hann nafninu í Brussel. Það mun ekki von á rassasleiki til byggða fyrr en náð verður í ESB umsóknina til Brussel og hún flutt yfir sjó og land til Íslands og fer á öskuhaug sögunnar. En hver segir að ESA hefði ekki kært þó samið hefði verið við Breta og Hollendinga á sínum tíma? Ætlað brot Íslands stóð engu að síður sem sjálfstæður gjörningur! Ekki kærðu Bretar og Hollendingar fyrir ESA. Samningur um Icesave hefði aldrei útilokað kæru. Enda var ESA og gat ekki verið aðili að slíkum samningi.  

Rekkinn (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 20:42

6 Smámynd: Óskar

Rekkinn er svo stór kall að hann þorir ekki koma fram undir nafni, ekki einu sinni fornafni- en þykist nógu góður til að kalla aðra aumingja!  Þetta er hinn dæmigerði Nei sinni í hnotskurn, hrokafullur þjóðrembusinni og vitleysingur. - Svo er hann að sjálfsögðu tilbúinn með afsökun ef og þegar við töpum hundruðum milljarða fyrir dómstólum útaf þjóðrembu - nei-inu , þá er þetta bara Össuri að kenna!  Gott að vera með þetta á hreinu þegar skellurinn kemur því ekki er séns að heykvískahjörðin, þetta sorglega samansafn lýðskrumara og þjóðremburugludalla sjái að sér, skammist sín , viðurkenni mistök og biðji þjóðina afsökunar á skaðanum sem þeir valda, no way!

Óskar, 20.12.2011 kl. 20:52

7 identicon

"heykvískahjörðin, þetta sorglega samansafn lýðskrumara og þjóðremburugludalla eru óvart 68% af þjóðinni Óskar!

Takk Rekki Þú talar þroskað mannamál 

anna (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 22:21

8 Smámynd: Óskar

Nei Anna - í fyrsta lagi voru það ekki 68% sem sögðu Nei, það voru um 60%.  Í öðru lagi hélt ég því aldrei fram að meirihlutinn sem sagði Nei væri heykvíslahjörðin - meirihlutinn er venjulegt fólk sem lét fífl og lýðskrumara i heykvíslahjörðinni plata sig.  því var logið að þjóðinni að það væri hagstæðast að segja Nei m.a. vegna þess að ESA átti ekki að þora að höfða mál gegn Íslandi!   Maður hélt að kjánarnir i Advice hefðu nú bara rænu á að halda kjafti eftir þessa rassskellingu eins og Indefence sem virðist horfinn af yfirborði jarðar en því miður er svo ekki.  Nú spretta aularnir upp tuðandi um hver á að sjá um málsvörnina VEGNA SKAÐANS SEM ÞEIR HAFA VALDIÐ.

Óskar, 20.12.2011 kl. 22:28

9 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Manni þætti að þessir menn, sem fullvissuðu þjóðina að engin hætta væri málsóknum og að ef mál fari á versta veg viðurkenndu áhættuna og bæðust afsökunnar á vanmati sínu. Í stað þess að vera með eitthvað spinn til að afvegaleiða ábyrgðina.

Andrés Kristjánsson, 20.12.2011 kl. 23:22

10 identicon

Það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð.

Þannig er það með ESB þó þú Óskar og Össur vitið það ekki.

Þetta bandalag á það eftir sem erfiðast er, og það er að deyja.

Á legsteininum gæti staðið: Ég sagði ykkur að ég væri veikur !

En eins dauði er annars brauð, eins og máltækið segir.

En farið hefur fé betra en ESB ef það er rétt eftir haft að þar sé heimskan slík að fáum takist að tyggja tyggigúmi og reka við á sama tíma !!

Það eru víst nokkur svona kalíber til í aðdáendaklúbbnum hér heima... 

Rekkinn (IP-tala skráð) 21.12.2011 kl. 01:22

11 Smámynd: Elle_E

Andrés og Óskar, þið eruð alveg úti að aka í þessu máli og sorglegt að lesa það sem þið skrifið.  Eins og allir JÁ-sinnar sem vildu heldur sættast á kúgun og lögleysu og ólögvarða kröfu en fara fyrir dóm.   En ekki er ég hissa á Óskari sem skilur ekki enn að Jóhönnuflokkurinn var í stjórn við falla bankanna og löngu fyrr.

Elle_E , 21.12.2011 kl. 03:11

12 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Fínt spjall :O) Ég þarf samt að leiðrétta Elís aðeins.  Hann segir hér að ofan:

"Voru skattgreiðendur á Íslandi ábyrgir á icesave reikningum í Brétlandi og Hollandi þar sem bankinn greiddi meðal annars innstæðu tryggingar í breska innistæðutrygginga sjóðinn held ekki"

Landsbankinn greiddi í innistæðutryggingasjóð á Íslandi sem tryggði allt að 20.887 evrum.  Landsbankinn greiddi einnig í innistæðutryggingasjóð á Englandi en það var til að dekka það sem upp á vantaði á Englandi til að hafa sambærilega tryggingu og aðrir bankar.  Þetta var svokölluð top-up trygging.

Þess vegna er Íslenski innistæðutryggingasjóðurinn ábyrgur fyrir 20.887 evrum.  Sá breski á því sem var á mil.i 20.887 og þess sem hann tryggði á þeim tíma og ESA gerir líklega kröfu um að TIF(íslenski innistæðutryggingasjóðurinn) borgi það sem upp á vantar til að tryggja innistæður að fullu.

Lúðvík Júlíusson, 21.12.2011 kl. 08:55

13 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Elle:

Ég er bara að vitnað í það sem ég les ekkert annað.  Þú getur verið ósammála því.  Kæran er staðreynd og hún er í tveim liðum.  Þegar kemur að verstu hugsanlegu útkomu þáer ég að vitna í það sem visir skrifaði um málið.

Vel má vera að já og nei sinnar þjást af því sem kallast cognitive bias.  Eitthvað sem grasserear í Íslenskri umræðu.

Andrés Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 11:51

14 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Nú er það framkomið er flestir sæmilega greindir menn sáu fyrir.  Nei-sinnar dregnir fyrir dómsstóla og settir á sakamannabekk.

það sem er eftirtektarvert er að á þeim tímapunkti eru Nei-sinnar alveg ráðalausir.  Hafa engin ráð og ekkert málefnalegt fram að færa.  Einna helst að þeir gangi um hágrátandi og segi:  Við borgum, við borgum - allt uppí topp!

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 11:57

15 Smámynd: Elle_E

Andrés, samningurinn sem JÁ-menn vildu kemur í alvöru ekkert kærunni við.  Hann hefði ekki stoppað kæruna og við værum þá í hrikalegum málum.  Eins og Rekkinn sagði að ofan: - - - En hver segir að ESA hefði ekki kært þó samið hefði verið við Breta og Hollendinga á sínum tíma? Ætlað brot Íslands stóð engu að síður sem sjálfstæður gjörningur! Ekki kærðu Bretar og Hollendingar fyrir ESA. Samningur um Icesave hefði aldrei útilokað kæru. Enda var ESA og gat ekki verið aðili að slíkum samningi.  

Rekkinn (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 20:42

Elle_E , 21.12.2011 kl. 12:00

16 Smámynd: Elle_E

Og Ómar, þú bara heldur áfram að gráta yfir kúgunarsamningnum.  Hvað veldur að þú og hinir JÁ-SINNARNIR VIÐ KÚGUN hafið ekki enn farið að borga hann ÚR EIGIN VASA???

Elle_E , 21.12.2011 kl. 12:07

17 Smámynd: Andrés Kristjánsson

ESA hefði ekki kært hefði samkomulag náðst við kröfuhafa.  Umræðan er orðinn annsi örvæntingafull, skiljanlega.

Andrés Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 12:26

18 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ótrúlegt hvernig mál sem aldrei átti aðfara fyrir dómstólum að mati Nei-sinna er allt í einu orðið að máli sem myndi alltaf fara fyrir dómstólum sama hvað.  Mótsagnakennt.

Hér er yfirlýsing frá mönnum sem teljast lögfróðir.

Það er ekki ástæða til að óttast að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) muni beita sér gegn okkur með löglausum kröfum. Og auðvitað eigum við aldrei að beygja okkur fyrir slíkum kröfum. Stofnunin hefur hingað til nánast eingöngu farið með einföld og borðleggjandi samningsbrotamál fyrir EFTA-dómstólinn. Í það minnsta ekkert mál sem er sambærilegt Icesave málinu……..Þeir sem vilja forðast áhættu af dómstólum ættu því að fella Icesave-lögin.

Brynjar Níelsson hrl.
Björgvin Þorsteinsson hrl.
Haukur Örn Birgisson hrl.
Jón Jónsson hrl.
Reimar Pétursson hrl.
Tómas Jónsson hrl.
Sveinn Snorrason hrl.
Þorsteinn Einarsson hrl.”

Andrés Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 12:39

19 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

það alveg ótrúlegt að lesa þennan barnaskap hjá þeim lögærðu. Ef eitthvað var borðleggjandi þá var það það að ESA mundi fara með dæmið fyrir Dómsstólinn. Brotið eða brotin á EES Samningum eru svo brútalt. Sennilega mest brútalt brot á EES sem sögur fara af. Tvennskonar megin og grunn brot.

1. Brot á Dírektífi 94/19 er kveður á um lágmarksbætur til innstæðueigenda á EES svæðinu.

2. Brot á Jafnræðisreglu EES.

Eins og ég margfór yfir lið fyrir lið með tilvísun í laga og regluverk og dómafordæmi - þá var alltaf borðleggjandi að ESA sendi þeta til Dósstólsins. Samt er ég bara einn íslenskur almúgamaður og það tók mig um 5 - 10 mínútur að komast að aðalatriðum í gegnum internetið. Maður spyr sig til hvers þessir löglæringar svokallaðir eru hafðir í skóla árum og áratugum saman - og þetta er vitið sem kemur útúr því.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 14:34

20 Smámynd: Elle_E

Andrés, kúgunarsamningurinn snérist um LÖGLAUSA KRÖFU um RÍKISÁBYRGÐ Á INNISTÆÐUM.  Kæra ESA snýst um mismunun sem var ekki og þeir höfðu sagt það sjálfir.  Líka Stefán Már Stefánsson lagaprófessor í Evrópurétti. 

EFTA dómstóllinn hefur ekki lögsögu í málinu.  Hann getur ekki dæmt sektir eða skaðabætur á ríkið.  Og ég segi eins og lögmennirnir: Og auðvitað eigum við aldrei að beygja okkur fyrir slíkum kröfum.

Ómar, ´barnaskapurinn´ er allur þinn.  

PÓLITÍSKUR ÞRÝSTINGUR kominn frá Evrópusambandinu og ætlað sem ógn.  Þið eruð alltof hræddir við dómstóla.  

Elle_E , 21.12.2011 kl. 16:36

21 Smámynd: Elle_E

Ómar hefur hágrátið í yfir 2 ár yfir að ná ekki kúgun yfir íslenska þjóð og lætur ekki segjast og tekur ekki rökum.  Málflutningur hans er fyrir löngu orðinn fáránlegur.  Nú heldur hann sig hafa vit og þekkingu framyfir HÆSTARÉTTARLÖGMENN. 

Elle_E , 21.12.2011 kl. 16:54

22 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Skulum fara yfir þetta:

Einn íslenskur almúgamaðr sagði: ESA fer með þetta fyrir Dómsstólinn. það er 100% öruggt. Sagði hinn íslenski almúgamaður.

8 feitir ..,,Hæstaréttarlögmenn" sögðu:

“Það er ekki ástæða til að óttast að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) muni beita sér gegn okkur með löglausum kröfum. Og auðvitað eigum við aldrei að beygja okkur fyrir slíkum kröfum. Stofnunin hefur hingað til nánast eingöngu farið með einföld og borðleggjandi samningsbrotamál fyrir EFTA-dómstólinn. Í það minnsta ekkert mál sem er sambærilegt Icesave málinu……..Þeir sem vilja forðast áhættu af dómstólum ættu því að fella Icesave-lögin.

Brynjar Níelsson hrl.

Björgvin Þorsteinsson hrl.

Haukur Örn Birgisson hrl.

Jón Jónsson hrl.

Reimar Pétursson hrl.

Tómas Jónsson hrl.

Sveinn Snorrason hrl.

Þorsteinn Einarsson hrl.”

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 17:21

23 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Og ps. Eigum við að ræða þetta eitthvað? Nei, hélt ekki.

Svo skulu einstaklingar, þar á meðal 8 feitir hæstaréttarlögmenn, lesa stefnuna. þeir leggja til að mynda útaf dómi Péturs Páls og fleiri gegn þýska ríkinu. þeir telja að hann í raun dæmi um ríkisábyrgð. (eins og ég einn manna á Íslandi hef bent á.)

þessir peyjar svo sem ,,advæs", ,,indífens" og 8 feitir hæstarettarlögmenn gætu td. byrjað á þvi að kynna sér mál að gagni. þetta er svo mikill dónaskapur sem þessir ofstækis og skynsemisskortsmenn hafa sýnt - að fáheyrt er. Fáheyrt. Orðið svo þreytt þetta hálfvitagaspur öfgamanna. Kjánamálflutningur hjá þeim í besta falli og í versta falli hreinræktuð heimska.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 17:38

24 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

ps.ps. þ.e.a.s. að ESA leggur útaf dómi Péturs Páls og fleiri. Að þar sé dæmt um rikisábyrgð á lágmarkinu. það er byggt svo sterkum rökum hjá ESA að ríkin beri ábyrgð á að lágmarksbætur séu greiddar - að það er hreinlega erfitt að sjá hvernig dómurinn eigi að komast hjá því að fallast á það sjónarmið. Til að sjá verulegan möguleika á að Dómsstóllinn sjái eitthvað allt annað en ESA þarna - þá þarf að koma með skýr dómafordæmi. þrátt fyrir að einn íslenskur almúgamaður hafi marg, margskorað á ofstækismenn og kjána að koma með eins og eitt dómafordæmi sem styður upplegg þeirra - þá hafa þeir aðilar eigi komið með neitt slíkt. Ekki neitt. Skila auðu. Segja pass.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.12.2011 kl. 17:44

25 identicon

Áhugaverðar umræður.

Það er alveg augljóst að fjórfrelsið var brotið. Það má ekki mismuna einstaklingum innan EES á þennan hátt.

Það sem mér finnst samt áhugaverðast er að Icesave er hluti af því "fjármálakerfi" sem íslenska ríkið bauð bönkunum.

Það er verið að kæra íslenska ríkið en ekki einstaklinga þessarar þjóðar.

Það er aðeins synd hversu stikkfrí stjórnvöld eru alltaf vegna þess að margir telja ríkið vera sig:)

Stefán (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 06:24

26 Smámynd: Sævarinn

Ég nennti ekki að lesa þetta allt, en ein spurning eða tvær: Útibú Landsbankans erlendis borgaði væntanlega skatta og skyldur erlendis (naut íslenska ríkið góðs af því og þar með almenningur?) og því ætti þá almenningur á íslandi að ábyrgjast skuldir erlendis þegar það naut ekki ávöxtunar af þessu hérlendis? er þetta bara one way díll? ef Landsbankaútibú erlendis tapar þá borgum við, en ef hann græðir þá fær íslenskur almenningur ekki að njóta góðs af því, hljómar ekki sanngjarnt.

Sævarinn, 22.12.2011 kl. 16:38

27 identicon

Sævar, getur þú svarað þessari spurningu fyrir okkur?

Stefán (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 21:01

28 Smámynd: Hans Haraldsson

Er þetta ekki dálítið ótímabært innlegg hjá síðhöfundi?

Í fyrsta lagi er EFTA-dómstóllinn ekki búinn að komast að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi brotið nein EES-lög. Sigurhlutfall ESA í öðrum málum þar sem málavextir eru aðrir segir ekki að þeir muni vinna núna. Í þessu máli er bullandi lagaleg óvissa um skyldur ríkisins og ekki trúi ég því fyrr en ég sé það að dómstólinn fallist á að skattborgarar geti lent í stórkostlegum ábyrgðum út á reglur sem engin skildi almennilega áður en atburðarásin sem leiddi til ábyrgðanna átti sér stað. Skattlagning án eðlilegrar málsmeðferðar á kjörnu þingi er andstæð allri lýðræðislegri hefð og ef svo ólíklega færi að dómstóllinn dæmdi okkur ábyrg fyrir tryggingasjóðnum væri það full ástæða til að henda EES-samningnum í ruslið samdægurs.

Í öðru lagi er það eitt að hafa brotið á einhvern hátt gegn EES, annað að vera skaðabótaskyldur. Til þess að skaðabótaskylda skapist þarf að sýna fram á tjón. Ef t.d niðurstaða dómstólsins verður að íslenska ríkið beri ekki ábyrgð á innistæðutryggingasjóðnum en að við höfum mismunað eftir þjóðerni með að tryggja innstæður í innlendum útibúum þá þyrftu Bretar og Hollendingar að byggja fjárkröfur á því að sýna fram á að þeir hefðu verið betur settir með Icesave-innistæðurnar tryggðar í íslenskum krónum og lokaðar inni í gjaldeyrishöftum. Skaðabótamálið yrði raunar annað og aðskilið dómsmál.

Fyrir mitt leiti á ég fyrr von á að við breytumst í Kúbu norðursins en að boðaður Icesave dómsdagur renni einn daginn upp.

Hans Haraldsson, 23.12.2011 kl. 02:07

29 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ég hélt því ekki fram að EFTA dómstóllinn hafi komist að niðurstöðu og vitnaði bara í frétt vísis.is um mögulega hörmungar útkomu. 

Andrés Kristjánsson, 23.12.2011 kl. 12:52

30 identicon

>> vitnaði bara í frétt vísis.is um mögulega hörmungar útkomu ...

Það er nú reyndar eitthvað krúttlegt við að þú skulir fyllast skelfingu út af þessari "frétt" á Vísi.is, sem var ekkert nema vangaveltur og fabúleringar um eitthvað sem gæti hugsanlega ef til vill gerst einhverntíman: þetta er áróðursgrein sem er skrifuð til að koma róti á tilfinningar einfaldra sála en í þessari "frétt" er ekki ein einasta haldbær og óhrekjanleg staðreynd. Lestu "fréttina" aftur og spáðu aðeins í hversu merkilega oft orð á borð við "ef" og "hugsanlega og "kanski" og "ef til vill" koma fyrir í henni.

Ef þú læsir frétt á borð við "Ef til vill svífur lofsteinn inn í sólkerfið á næstunni. Hugsanlega grípur aðdráttarafl sólar í hann og þá má jafnvel gera ráð fyrir að hann svífi nær Jörðu og ef til vill fer hann svo nærri að kanski rekst hann á Jörðina með skelfilegum afleiðingum" ... myndirðu þá umsvifalaust gera ráð fyrir að Jörðin væri að farast eftir nokkrar vikur?

Líklegast myndirðu gera það, já. Sem betur fer eru Íslendingar þó almennt ekki svona hræðslugjarnir og ginkeyptir fyrir ómerkilegum hræðsluáróðri.

Ekki láta þetta eyðileggja fyrir þér jólin. Þetta eru einfaldlega óprúttnir aðilar, sem eiga hagsmuna að gæta, sem eru að reyna að hræða þig.

Birgir (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 17:57

31 Smámynd: Elle_E

>Og ps. Eigum við að ræða þetta eitthvað? Nei, hélt ekki.<

Getur maður ekki bara eins lamið höfðinu utan í veggi?  Það hefur aldrei þýtt neitt að ræða eða rökræða neitt við þig hvað varðar Brusselbáknið eða ICESAVE.  

Elle_E , 27.12.2011 kl. 22:41

32 Smámynd: Elle_E

Og svo er það rangt að það hafi verið ´Advice´ sem stóð fyrir undirskriftasöfnunni þó það hafi verið e-ir þaðan.  Það var Samstaða. 

Elle_E , 2.1.2012 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband